Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.

Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.

Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.

Skrif rannsóknartillagna

  • Spring 2027
  • Kennarar: Dr. Brack Hale / R. Morgan Greene

Um námskeiðið

Námskeiðið miðast við að auka skilning, leikni og hæfni nemenda er lýtur að rannsóknartillögum og -aðferðum. Námskeiðið samanstendur af röð vinnustofa sem veita nemendum verkfæri til að þróa frambærilegar rannsóknartillögur. Auk þess felur námskeiðið í sér þjálfun í siðfræði rannsóknarvinnu.

Kennarar

Dr. Brack Hale:

er fagstjóri meistaranáms í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða. Brack er með doktorsgráðu (Ph.D.) í landauðlindum frá University of Wisconsin-Madison og M.E.M.-gráðu í vatnsauðlindastjórnun frá Duke-háskóla. Áður en hann hóf störf hjá Háskólasetrinu var hann prófessor í líffræði og umhverfisfræði, ásamt því að stýra deild umhverfismála, stærðfræði, sálfræði og heilbrigðisvísinda við Franklin University í Sviss. Hann gegndi einnig stöðu tímabundins deildarforseta námsmála (interim Dean of Academic Affairs) í eina önn áður en hann kom til HV. Dr. Hale hefur yfirgripsmikla reynslu af stjórnsýslu háskóla, námskrárgerð, kennslu og gæðamati, auk leiðtogastarfa og stjórnunar. Hann hefur tekið þátt í ýmiskonar samstarfi við Háskólasetrið frá árinu 2014, meðal annars með því að koma með nemendahópa og verja rannsóknarleyfi hér á landi árið 2017.

Brack Hale á ResearchGate

R. Morgan Greene:

er fagstjóri meistaranáms í sjávarbyggðafræði hjá Háskólasetri Vestfjarða. Hann er með MSc-gráðu í orkuvísindum frá Háskólanum í Reykjavík og er doktorsnemi við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Rannsóknarefni Morgan Greene snúa meðal annars að viðhorfum almennings, pólitík orkuskipta og þátttöku á orkumörkuðum. Áður en Morgan Greene hóf störf sem fagstjóri starfaði hann sem verkefna- og þróunarstjóri hjá Iceland School of Energy við Háskólann í Reykjavík.

Kennsluskrá

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • geta hannað rannsóknartillögu og rökstutt rannsóknarhönnun.
  • geta lagt traustan grunn að rannsóknarverkefni á meistarastigi.
  • geta mótað rannsóknarspurningar og sett markmið ásamt því að útskýra hvernig bregðast megi við þeim.
  • geta greint siðferðisleg álitamál sem komið geta upp í rannsóknum.
  • vera kunnugur og geta rætt lykilrit sem tengjast tilteknu efni innan sjávartengdra fræða.
  • geta skrifað fullmótaða rannsóknartillögu þar sem sannfærandi rök eru færð fyrir tilhlýðilegustu rannsóknaraðferðunum.