Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.

Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.

Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.

Horft til framtíðar: Sviðsmyndir fyrir strandsvæði norðurslóða

  • Spring 2027
  • Kennari: Adam Stepien

Um námskeiðið

Námskeiðið sameinar fjóra lykilþætti: (1) Yfirlit yfir mismunandi aðferðafræði við gerð framtíðarsýnar. (2) Sviðsmyndavinnustofu þar sem framtíð lítils strandsamfélags á norðurslóðum er tekin fyrir. (3) Grunnverkfæri til gerðar verkefnaáætlana. (4) Þróun tillögu að verkefni fyrir strandsamfélög á norðurslóðum, hvort sem hún byggir á hugmyndum eða raunverulegum aðstæðum.

Með lausnamiðaðri kennslu samþættir námskeiðið þekkingu nemenda úr ólíkum greinum og víkkar hana enn frekar. Nemendur læra grunnaðferðir til að hugsa til framtíðar, með áherslu á aðferðir sem almennt eru notaðar í einkafyrirtækjum og opinberum stofnunum.

Í vinnustofum nota nemendur þessar aðferðir við að þróa framtíðarsýn fyrir byggðir á norðurslóðum. Sviðsmyndavinnan veitir nemendum samþætta sýn á þróun samfélaga, skilning á óvissuþáttum, drifkröftum og hreyfiöflum breytinga á norðurslóðum, innsýn í það sem vantar í eigin þekkingu og reynslu af kostum og göllum sviðsmyndaaðferða sem almennt eru notaðar.

Í raunverulegum aðstæðum fylgja sviðsmyndaæfingar stefnumótun og ákvarðanatöku um raunhæfar aðgerðir. Þess vegna er síðasta vika námskeiðsins tileinkuð gerð verkefnaáætlana. Nemendur læra grunnverkfæri við verkefnaáætlunargerð, þar á meðal rökrétta hugsun, áfangaskiptingu og gerð verkefnatöflu. Þessi atriði nýtast einnig í sviðsmyndavinnunni. Með þessum grunni þróa nemendur sína eigin verkefnatillögu. 

Kennari

Adam Stepien:

is a political scientist working at the Arctic Centre of the University of Lapland. In his research, he focuses on Arctic governance, and in particular on the role of the European Union in the Arctic. Adam also deals with indigenous politics and regional development in northern peripheries. He has participated in a number of policy support and advisory projects, where the future of the Arctic is often being considered. 

As my course has a format of a workshop, it was of particular value for me that students had much personal experience and knowledge on a broad variety of issues relevant for Arctic communities, allowing them to learn from each other and making the course very enjoyable for the teacher.

Kennsluskrá

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • þekkja og geta nýtt sér aðferðir við gerð áætlana ásamt því að velja viðeigandi tæki til að vinna með í skipulagsvinnu.
  • geta útskýrt hvernig framsýnistækni getur gert nýsköpun, byggðaþróun og stefnumótun í málefnum hafsins traustari.
  • geta greint þau breytingaferli sem eru að eiga sér stað á strandsvæðum norðurslóða og skilið einkenni þeirra.
  • geta greint innbyrðis tengsl orsaka og geta íhugað áhrif þeirra.
  • geta prófað nýjar viðskiptahugmyndir á móti óhefðbundnum útgáfum framtíðarinnar.
  • geta reynt á leiðir í byggðaþróunarstefnu og stjórnun hafsins gagnvart öðrum útgáfum framtíðarinnar.
  • geta sýnt fram á getu til að miðla tækni til framsýni il hagsmunaaðila í dæmigerðri stöðu hafstjórnunar eða svæðisbundinnar þróunar.
  • geta skipulagt og útfært tillögur að verkefnum með notkun grunnatriða verkefnastjórnunar.