Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
Störf á sviðum auðlindastjórnunar og þróunar fela oft í sér að fólk stendur frammi fyrir erfiðum valkostum þar sem leitast er við að koma jafnvægi á marga þætti í einu: Verndun og nýtingu náttúruauðlinda, áskoranir loftslagsbreytinga, tap á líffræðilegum fjölbreytileika, en á sama tíma skal standa vörð um réttindi frumbyggja, stuðla að umhverfisréttlæti og tryggja heilbrigt hagkerfi. Þeir aðilar sem taka þátt í ákvarðanatöku og auðlindanotkun hafa oft ólíka forgangsröðun og siðferðileg gildi sem hefur í för með sér umdeildar ákvarðanir sem hafa langtímaáhrif. Þetta námskeið veitir yfirlit yfir fjölbreytt svið umhverfissiðfræði sem getur byggt undir ákvarðanatöku og stjórnun þessara mikilvægu auðlinda.Það kynnir einnig fyrir nemendum hagnýt dæmi um hvernig er hægt og ætti að nota siðferðilega nálgun. Sérstök áhersla verður lögð á raundæmi sem varða auðlindir sjávar og stranda.
Marie Schellens, environmental researcher at peacebuilding organisation PAX (NL), monitors environmental damage impacting the lives and livelihoods of people in conflict zones through earth observation and geospatial analysis, in collaboration with affected communities. She explores the wider linkages between environmental degradation, the climate crisis, and conflict to strengthen international norms and policies on this nexus and supports the integration of environmental initiatives in peace work.
Before joining PAX, she worked as an environmental security analyst at the UN Environment Programme. She coordinated the development of Strata, an easy-to-use web-based mapper that supports project managers, analysts, and policymakers to streamline climate security data in their daily work. From 2016 to 2020, she was a Marie Curie PhD fellow at Stockholm University and the University of Iceland, researching the role of natural resources in conflict risk. She holds an MSc in Geography jointly from KU Leuven and Free University Brussels (Belgium, 2015).
Að námskeiði loknu á nemandi að: