Vísindaport: Stefna Evrópusambandsins gagnvart Norðurslóðum … Um hvað snýst þátttaka ESB á Norðurslóðum í raun og veru?

Í vísindaporti vikunnar bjóðum við velkominn Adam Stepien, stjórnmálafræðing og stundakennara við Háskólasetur Vestfjarða.

Í janúar 2026 hóf Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samráð um uppfærslu á stefnu ESB gagnvart Norðurslóðum. Frá árinu 2021, þegar nýjasta stefnumótandi skjal ESB um Norðurslóðir var birt, hefur margt breyst – bæði á Norðurslóðum og í heiminum almennt. Því er tímabært að greina nánar eðli og umfang tengsla ESB við Norðurslóðir og meta hvaða áhrif stefnan hefur haft í framkvæmd.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um tengsl ESB og Norðurslóða, heildstæða stefnu ESB í málefnum svæðisins og þær fjölbreyttu aðgerðir ESB sem hafa áhrif á þróun þess.

Markmið erindisins er að skapa samhengi fyrir umræðu um það hverju við, sem búum á norðurslóðum, getum og ættum að vænta frá ESB á komandi árum.

Adam Stepien er stjórnmálafræðingur og starfar við Norðurslóðamiðstöð  við Háskólann í Lapplandi í Finnlandi. Rannsóknir hans beinast að stjórnsýslu og stjórnun Norðurslóða, stefnumótun ESB og samfélags- og efnahagsþróun jaðarsvæða. Hann starfar einnig sem ráðgjafi og tekur um þessar mundir þátt í verkefnum sem snúa að stjórnun mengunarmála á evrópskum Norðurslóðum.

Erindið fer fram á ensku

Erindið fer fram á kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða og hefst kl. 12.10. Erindinu er einnig streymt í gegnum zoom hlekk og má finna hann hér

https://eu01web.zoom.us/webinar/register/WN_5lccEs98QEy2Sk9P5YsHVg