Ísland hefur orðið leiðandi afl í nýsköpun innan bláa hagkerfisins, frá endurnýjandi ferðaþjónustu til vöruþróunar. Nú lítur Oregon-ströndin til Íslands og fylgir í fótspor þess, með áherslu á 100% nýtingu fisks og ábyrga miðlun sem byggir á áreiðanleika fólks og staðar.
Í vísindaporti vikunnar bjóðum við hjartanlega velkomna Lynnee Jacks, fyrrum nemenda við Háskólasetur Vestfjarða. Með hliðsjón af reynslu sinni úr náminu í Sjávarbyggðafræði við Háskólasetur Vestfjarða mun Lynnee Jacks lýsa ferð sinni frá fræðilegum kenningum yfir í hagnýta framkvæmd á heimaslóðum. Hún sýnir þannig hvernig alþjóðleg saga um byggðaþróun er að þróast í Oregon á svipaðan hátt og hér á Vestfjörðum.
Lynnee Jacks útskrifaðist árið 2023 úr námi í Sjávarbyggðafræði við Háskólasetur Vestfjarða. Sem sagnamaður og sérfræðingur í samskiptum beinist starf hennar að því að efla verkefni sem styrkja viðnámsþrótt dreifðra byggða.
Sem stofnandi Sandstone Stories starfar hún sem ráðgjafi í verkefnum sem tengja byggðaþróun við hafið og bláa hagkerfið í Kyrrahafsnorðvesturhluta Bandaríkjanna og víðar.
Eftir þriggja ára starf við að leiða samskipti atvinnugreinarinnar fyrir Oregon Coast Visitors Association stýrir hún nú samskiptum fyrir Oregon Ocean Cluster í nánu samstarfi við Iceland Ocean Cluster.
Erindið fer fram á ensku
Erindið fer fram á kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða og hefst kl. 12.10. Erindinu er einnig streymt í gegnum zoom hlekk og má finna hann hér