Til að safna gögnum fyrir meistararitgerð sína um ostrurækt í Saloum-árósunum í Senegal ferðaðist Corto Pearson á mótorhjóli frá Marseille til Dakar, alls um 18.000 kílómetra leið í gegnum nokkur lönd og yfir Sahara-eyðimörkina.
Þetta verður ekki hefðbundinn fræðilegur fyrirlestur þar sem rannsóknarniðurstöður eru kynntar, heldur ferðasaga sögð með ljósmyndum og myndskeiðum. Corto segir frá ferðalaginu á rannsóknarsvæðið og því hvernig reynslan á vettvangi ögraði þeim hugmyndum og forsendum sem hann hafði byggt meistararitgerð sína á.
Fyrirlesturinn veitir jafnframt innsýn í lífið í Saloum-árósunum og samfélögin þar, sem og einstaka reynslu Cortos af því að vera eini útlendingurinn á eyju á meðan Ramadan, föstumánuður múslima, stóð yfir.
Að lokum er þetta saga um að láta draum rætast, þótt veruleikinn hafi reynst annar en hann hafði ímyndað sér, og um að finna sér heimili á Ísafirði sem hann langar að snúa aftur til.
Corto Pearson er fransk-breskur meistaranemi í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða og hefur bakgrunn í landfræði.
Í meistararannsókn sinni nýtir hann fjarkönnun, landupplýsingakerfi (GIS) og viðtöl við íbúa til að rannsaka ostrurækt í Saloum-árósunum í Senegal.
Corto hefur einnig mikinn áhuga á hefðbundinni filmuljósmyndun. Samhliða vettvangsrannsókn sinni vann hann að listrænu ljósmyndaverkefni þar sem hann festi líf og samfélög strandbyggða á filmu.
Erindið fer fram á ensku
Erindið fer fram á kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða og hefst kl. 12.10. Erindinu er einnig streymt í gegnum zoom hlekk og má finna hann hér