Vísindaport: Hvernig var Japan?!?

Í Vísindaporti þann 15. maí kl. 12:10 munu Catherine Chambers, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða, og Dan Govoni, sérfræðingur í ofanflóðahættumati hjá Snjóflóðasetrinu, svara spurningunni: „Hvernig var að búa í Japan?“

Cat og Dan bjuggu ásamt 9 og 12 ára dætrum sínum í Kashiwanoha í Japan í fjóra mánuði frá síðastliðnum desember.

Þau munu segja lítillega frá faglegu starfi sínu í Japan, en einnig deila persónulegri upplifun sinni og skemmtilegum sögum tengdum skólakerfinu, mat, menningu og því hvernig það er að flytja til Japans með tvær töskur og snúa heim með talsvert meira.

Erindið fer fram á íslensku

Erindið fer fram á kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða og hefst kl. 12.10. Erindinu er einnig streymt í gegnum zoom hlekk og má finna hann hér

https://eu01web.zoom.us/j/62723379304