Hefur þú einhvern tíma orðið hissa á frammistöðu nemenda í verkefnum eða tekið eftir því hvernig smávægileg breyting á kennsluaðferð getur haft greinileg áhrif á þátttöku og virkni í tímum? Fræðileg nálgun í kennslu kviknar oft út frá slíkri forvitni og leiðir til skýrari og markvissari spurninga um nám nemenda og það námsumhverfi sem við sköpum, hvort sem er í kennslustofu eða á vettvangi. 
Í vísindaporti vikunnar flytur Dr. Michelle Harris stundakennari við Háskólasetur Vestfjarða, erindið „Ferðalag líffræðings inn í fræðaheim kennslu og náms“. Í fyrirlestrinum fjallar hún um hvernig forvitni gagnvart eigin kennslu, til dæmis þegar frammistaða eða þátttaka nemenda kemur á óvart, getur orðið upphaf að fræðilegri nálgun á kennslu og námi (Scholarship of Teaching and Learning, SoTL). Hún segir frá því hvernig hún nýtti bakgrunn sinn sem líffræðingur til að skoða og greina á kerfisbundinn hátt þær spurningar og áskoranir sem vöknuðu í kennslunni, og hvernig sú vinna þróaðist áfram innan Discipline-Based Education Research (DBER). Hún kynnir dæmi um samstarfsverkefni og birtingar á sviði SoTL og DBER, bendir á gagnleg úrræði og dregur saman lærdóm sem getur nýst kennurum sem vilja styrkja fræðilega nálgun í eigin kennslu.
Dr. Michelle Harris lauk doktorsprófi frá Wisconsin–Madison háskólann árið 1999 og lagði þar stund á rannsóknir á tengslum byggingar og virkni hjá hryggdýrum. Hún kenndi í 23 ár í heiðursnámi í líffræði við skólann og starfaði með afar áhugasömum og metnaðarfullum nemendum. Í rannsóknum sínum og kennslu hefur hún gjarnan litið á heiminn út frá tengslum forms og virkni , sjónarhorni sem hefur mótað rannsóknir hennar á kennslu og námi þvert á líffræðilegar fylkingar, stærðarskala og fræðigreinar. Hún lét af störfum árið 2022 og hlaut þá titilinn heiðursprófessor.
Erindið fer fram á ensku
Erindið fer fram á kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða og hefst kl. 12.10. Erindinu er einnig streymt í gegnum zoom hlekk og má finna hann hér