Vísindaport: Áskoranir sameinaðra sveitarfélaga: eru heimastjórnir lausnin?

Í vísindaporti vikunnar bjóðum við velkomna Steinunni Ásu Sigurðardóttir, verkefnastjóra Vestfjarðarstofu, mun hún kynna niðurstöður meistararannsóknar sinnar í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands, sem ber heitið Valdið til þorpanna: Frá hverfisráðum til heimastjórna?

Við sameiningar sveitarfélaga verða til stærri skipulagheildir og rökin fyrir því að sameina sveitarfélög felast gjarnan í aukinni hagkvæmni, skilvirkni og meiri fagþekkingu. Andstæðingar sameininga bera þá gjarnan fyrir sig þau rök að við sameiningar glatist þekking á nærsamfélagi og er gjarnan talið að smærri byggðalög beri skarðan hlut frá borði.

Í rannsókn sinni skoðaði Steinunn þessar áskoranir og leiðir sem hafa verið farnar til að reyna að mæta þeim. Framkvæmd var rannsókn á upplifun íbúa tveggja fjölkjarna sveitarfélaga, Ísafjarðarbæjar og Múlaþings á stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélagsins og var sjónum sérstaklega beint að smærri byggðlögum í samanburði við stjórnsýslukjarnann. Í Ísafjarðarbæ hafa um nokkurt skeið starfað óformleg hverfisráð án formlegs ákvarðanatökuvalds en Múlaþing var, við sameiningu 2020, fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að stofna heimastjórnir með formlegt ákvarðanatökuvald. Í dag eru starfandi heimastjórnir í tveimur sveitarfélögum, Múlaþingi og Vesturbyggð, en rannsóknir á þeim eru enn af skornum skammti og verður leitast eftir því í fyrirlestrinum að varpa frekara ljósi á heimastjórnarfyrirkomulagið í fræðilegu samhengi.

Steinunn Ása Sigurðardóttir starfar sem verkefnastjóri hjá Vestfjarðastofu. Hún er nýútskrifuð með MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá sama skóla

Erindið fer fram á íslensku

Erindið fer fram á kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða og hefst kl. 12.10. Erindinu er einnig streymt í gegnum zoom hlekk og má finna hann hér

https://eu01web.zoom.us/webinar/register/WN_5lccEs98QEy2Sk9P5YsHVg