Á föstudaginn næsta þann 30. maí mun Anna Rudloff ræða við okkur um doktorsverkefnið sitt. Hún mun fræða okkur um stjórnun snjóflóða- og skriðuhættu í og á milli Vestfjarða og Sviss.
Anna er doktorsnemi í mannlegri landafræði við háskólann í Freiburg í Þýskalandi og dvelur nú sem gestavísindamaður við Háskólasetur Vestfjarða. Í doktorsverkefni sínu, sem fjallar um þekkingardýnamík í hamfaravarnastjórnun, rannsakar Anna hvernig rýmisímyndir móta tengsl milli þekkingar, samfélags og efnisleika í Sviss. Dvölin á Íslandi gefur henni tækifæri til að skoða alþjóðlega þætti þekkingarsköpunar og -beitingar nánar. Þar beinist athygli hennar einkum að starfsháttum og orðræðu í stjórnun og rannsóknum á snjóflóðahættu, sem og alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði – ekki síst milli Íslands og Sviss
Erindið fer fram á kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða og hefst kl. 12.10. Erindinu er einnig streymt í gegnum zoom hlekk og má finna hann hér https://eu01web.zoom.us/j/69947471079
Fyrirlesturinn fer fram á ensku