Í Vísindaporti vikunnar fáum við til okkar ísfirðinginn dr. Sigrúnu Sigurðardóttur sem heldur erindi um áföll, afleiðingar þeirra og úrræði. Í erindinu fjallar hún um hvernig áföll geta haft áhrif á líf fólks og hvaða leiðir eru til staðar til að vinna úr þeim.
Samhliða erindinu mun hún kynna nýútgefna bók sína, Áfall hvað svo? þar sem hún tekur fyrir þessi sömu viðfangsefni og varpar ljósi á málið bæði út frá fræðilegri umfjöllun og eigin sýn.
Flest verðum við fyrir áföllum einhvern tímann á lífsleiðinni, en gerum okkur ekki alltaf grein fyrir áhrifum þeirra fyrr en síðar, þegar líkamleg, sálræn eða félagsleg einkenni koma fram. Erindið gefur tækifæri til að staldra við og skoða þetta mikilvæga málefni í fræðilegu og samfélagslegu samhengi.
Sigrún er fædd og uppalin á Ísafirði. Hún lauk stúdentsprófi frá MÍ árið 1988, útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá HA árið 2001, lauk MS-prófi í heilbrigðisvísindum frá HA árið 2007 og doktorsprófi í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2017.
Erindið fer fram á íslensku
Erindið fer fram á kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða og hefst kl. 12.10. Erindinu er einnig streymt í gegnum zoom hlekk og má finna hann hér