Námskeiðið veitir yfirsýn yfir stöðu úrgangsmála og framtíðarsýn um úrgangsstjórnun. Kynnt eru mismunandi úrgangsstjórnunarkerfi með dæmum frá alþjóðlegum vettvangi. Þá er fjallað um meðhöndlun tiltekinna úrgangstegunda út frá stigskiptingu úrgangs (forvarnir, endurnotkun, endurvinnsla og förgun) og áhrif þessara aðferða á sjálfbærni.
Lesið meira um námskeiðið hér.