Námskeið: Siglingar og starfsemi á hafi úti á norðurslóðum

Þetta þverfaglega námskeið skoðar þróun í skipaflutningum á Norðurslóðum og starfsemi á hafi út frá fortíð, nútíð og framtíð. Með heildrænni nálgun er kannað flókið samspil samfélagslegra-, efnahagslegra-, landfræðilegra-, umhverfis- og loftslagsþátta sem móta núverandi strauma í siglingum á Norðurslóðum. Námskeiðið sameinar fyrirlestra með hagnýtum verkefnum, þar á meðal tilviksrannsóknum, hópverkefnum, vettvangsæfingum og einstaklingsverkefnum. Vettvangsverkefnin veita nemendum tækifæri til að kynnast hagsmunaaðilum sem taka þátt í þróun flutninga á svæðinu og kynna hagnýta þætti siglinga við skilyrði á Norðurslóðum. Efni námskeiðsins samanstendur af fræðigreinum, fjölmiðlaefni og heimildarmyndum til að veita fjölbreytt sjónarhorn á áskoranir og tækifæri í siglingum á Norðurslóðum.

Hægt er að lesa meira um námskeiðið hér.