Í þessu námskeiði eru könnuð með gagnrýnum hætti samtímamálefni tengd fæðuöryggi, fæðusjálfræði, fæðuréttlæti, sjálfbærni og seiglu fæðukerfa. Með notkun ramma hagrænnar landfræði munu nemendur kanna flókna uppbyggingu bæði framleiðslu- og virðiskeðja, hér undir dreifingu, neyslu og losun matarúrgangs. Sérstök áhersla verður lögð á strandsvæði. Þátttökunám, tenging við samfélagið og gagnrýnin kennslufræði eru kjarnanálganir í námskeiðinu.
Hægt er að lesa meira um námskeiðið hér.