Námskeið: Opinber stefnumótun – frá hugmynd til aðgerða

Námskeiðið veitir nemendum innsýn í það ferli hvernig hugmynd eða þörf fyrir opinbert inngrip getur orðið að stefnu í framkvæmd. Stefnumótunarferlið er skoðað með áherslu á kenningar um málefnasetningu (e.sv. agenda-setting), þ.e. hvernig mál kemst á dagskrá stjórnvalda og hvað skýrir hvers vegna mál nær stundum fram að ganga en stundum ekki. Einnig er fjallað um ólíka þætti stefnumótunarferlisins: skilgreiningu vandamála, málefnasetningu, mótun stefnu, framkvæmd og ábyrgðarskyldu. Litið er til ólíkra sjónarmiða og hagsmuna er varða skilvirkni, jöfnuð, frelsi einstaklingsins og félagslega samheldni þegar markmið opinberrar stefnumótunar eru skilgreind. Nemendur öðlast innsýn í þær aðferðir sem stjórnvöld beita til að ná markmiðum sínum með því að fjalla um hin ýmsu stjórntæki.

Lesið meira um námskeiðið hér.

Öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur eru opin gestanemum, skiptinemum og fólki úr atvinnulífinu og eru hluti af tveimur alþjóðlegum þverfaglegum meistaranámsleiðum, haf- og strandsvæðastjórnun, og sjávarbyggðarfræði.