Námskeið: Eðlisræn ferli strandarinnar

Í þessu námskeiði er fjallað um haf- og strandumhverfi með áherslu á tengslin milli náttúrulegra ferla annars vegar og stefnumörkunar og stjórnunar hins vegar. Námskeiðið skoðar eðlisfræðilega þætti umhverfisins, svo sem öldur, strauma, færslu jarðefna, myndun og mótun fjöru, roföfl og setmyndun, auk mögulegra afleiðinga hækkunar sjávarborðs og hnattrænnar hlýnunar. Þessir þættir eru settir í samhengi við áhrif manna á strandsvæði, þar á meðal nýtingu strandsvæða, strandvarnir, mengun (t.d. sjávarrusl) og nýtingu auðlinda.

Lesið meira um námskeiðið hér.

Öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur eru opin gestanemum, skiptinemum og fólki úr atvinnulífinu og eru hluti af tveimur alþjóðlegum þverfaglegum meistaranámsleiðum, haf- og strandsvæðastjórnun, og sjávarbyggðarfræði.