Í þessu námskeiði fá nemendur innsýn í umhverfis- og auðlindahagfræði og þau stjórntæki sem notuð eru við gerð opinberrar stefnumótunar á haf- og strandsvæðum og við sjálfbæra þróun. Kynntir verða grunnþættir staðlaðra hagfræðilegra greininga (nýklassísk hagfræði) sem og aðrar nálganir, s.s. visthagfræði. Lögð er áhersla á hvernig stuðla má að heilbrigðu vist- og hagkerfi auk þess að útvega nemendum nauðsynleg verkfæri til að leggja mat á markmið og taka ákvarðanir í tengslum við umhverfis- og auðlindastjórnun á haf- og strandsvæðum.
Lesið meira um námskeiðið hér.
Öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur eru opin gestanemum, skiptinemum og fólki úr atvinnulífinu og eru hluti af tveimur alþjóðlegum þverfaglegum meistaranámsleiðum, haf- og strandsvæðastjórnun, og sjávarbyggðarfræði.