Námskeið: Bjargráð við hamförum

Kynntir eru þættir sem hafa áhrif á seiglu samfélaga, þ.e. getu þeirra til að jafna sig eftir mikla áraun. Beitt er þverfræðilegum nálgunum til að skýra áhrif hamfara á einstaklinga, nærsamfélag, innviði og stofnanir. Kynnt eru meginhugtök hamfarafræða út frá jarðvísindum, umhverfisfræðum, félagsfræðum, heilbrigðis- og sálafræðum og menningarfræðum. Fjallað er um vöktun og viðvaranir, undirbúning og hópæfingar sem dregið geta úr áhrifum hamfaranna. Einnig er farið yfir áfallahjálp, samskipti, fjölmiðla, listræna og andlega þætti sem hluta af viðbrögðum við erfiðleikum, sorg og áföllum.

Lesið meira um námskeiðið hér.

Öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur eru opin gestanemum, skiptinemum og fólki úr atvinnulífinu og eru hluti af tveimur alþjóðlegum þverfaglegum meistaranámsleiðum, haf- og strandsvæðastjórnun, og sjávarbyggðarfræði.