Norður-Íshafið og aðliggjandi höf eru að ganga í gegnum miklar breytingar vegna loftslagsbreytinga sem hafa áhrif á ísbreiðu þess og nýjar tegundir atvinnustarfsemi eins og námugröft á hafsbotni. Það vakna sífellt fleiri spurningar um stjórnunar- og réttlætismál, allt frá notkun frumbyggja á sjávarsvæðum og hæði þeirra á hafi til fæðuöryggis, til vistfræðilegra áskorana sem fylgja nýrri auðlindanýtingu og stefnumála sem liggja að baki þessum framkvæmdum.
Lesið meira um námskeiðið hér.
Öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur eru opin gestanemum, skiptinemum og fólki úr atvinnulífinu og eru hluti af tveimur alþjóðlegum þverfaglegum meistaranámsleiðum, haf- og strandsvæðastjórnun, og sjávarbyggðarfræði.