Vilt þú leigja herbergi eða íbúð í sumar?

Það er sannarlega ánægjulegt að Stúdentagarðar Háskólaseturs Vestfjarða séu þéttbókaðir í allt sumar – en það þýðir líka að þátttakendur á íslenskunámskeiðum Háskólaseturs þurfa að leita annað eftir gistingu á viðráðanlegu verði.

Getur þú hjálpað?

Þátttakendur eru á öllum aldri og hvaðanæva að úr heiminum, en eiga það sameiginlegt að vera íslandsvinir, hingað komnir til að læra tungumálið. Sumir vegna vinnu sinnar eða náms, en sumir aðeins vegna einlægs áhuga á ástkæra, ylhýra.

Við óskum eftir fólki á lista sem hefur áhuga á að leigja út herbergi eða íbúð í sumar. Fyrirkomulagið er á þann veg að þeir sem hafa húsnæði í boði setja sig í samband við Háskólasetur og við komum fólki svo í samband við þátttakendur íslenskunámskeiða sem vantar húsnæði. Öll umsýsla fer svo fram milli leigusala og leigutaka, án aðkomu Háskólaseturs.

Ekki þarf að sjá leigjendum fyrir fæði eða öðrum munaði, aðeins húsnæði, rúmfötum og aðgengi að nauðsynlegri aðstöðu, en ef boðið er upp á heimagistingu og heimilisfólk er heima við, væri ekki verra ef hægt væri að spjalla saman og æfa tungumálið.

Íslenskunámskeiðin okkar eru haldin á eftirfarandi dagsetningum:

  • 29. júní – 10. júlí
  • 13. - 17. júlí
  • 20. - 24. júlí
  • júlí – 7. ágúst
Áhugasamir sendi okkur póst á islenska@uw.is þar sem þarf að koma fram:

Upplýsingar um leigusala og tímabil

  • Nafn, netfang og símanúmer
  • Hvenær getur þú leigt húsnæði?


Lýsing á húsnæðinu

  • Heimagisting með heimilisfólki, sér íbúð, herbergi?
  • Staðsetning (Ísafjörður eða staðirnir í kring - sumir þátttakendur eru á bíl).
  • Eru gæludýr á heimilinu?
  • Sér óskir um leigjendur (t.d. aldur eða kyn)?

 

Við hlökkum til að heyra frá ykkur.