Hagnýt aðferðafræði

  • Spring 2026
  • Kennarar: Dr. Brack Hale / R. Morgan Greene / Dr. Matthias Kokorsch

Um námskeiðið

Í námskeiðinu öðlast nemendur þekkingu, leikni og hæfni í hagnýtum aðferðum. Á námskeiðinu er farið yfir helstu aðferðir sem notaðar eru í sjávartengdum fræðum og unnið með efnivið líkt og sýnatöku, gagnasöfnun, úrvinnslu og túlkun. Styrkleikar og takmarkanir viðeigandi aðferða eru ræddir. Námskeiðið samanstendur af gestafyrirlestrum þar sem kynntar verða aðferðir sem notast er við á þessu sviði. Þar að auki verður fjallað um tengsl aðferðafræði og fræðilegra viðfangsefna. Í verklegum tímum ræða nemendur rannsóknargreinar í tengslum við sjávartengd fræði sem og aðferðir. Á námskeiðinu öðlast nemendur færni í að beita ólíkum aðferðum og verkfærum til að stýra vísindalegum og vönduðum könnunum.

Kennarar

Dr. Brack Hale:

er fagstjóri meistaranáms í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða. Brack er með doktorsgráðu (Ph.D.) í landauðlindum frá University of Wisconsin-Madison og M.E.M.-gráðu í vatnsauðlindastjórnun frá Duke-háskóla. Áður en hann hóf störf hjá Háskólasetrinu var hann prófessor í líffræði og umhverfisfræði, ásamt því að stýra deild umhverfismála, stærðfræði, sálfræði og heilbrigðisvísinda við Franklin University í Sviss. Hann gegndi einnig stöðu tímabundins deildarforseta námsmála (interim Dean of Academic Affairs) í eina önn áður en hann kom til HV. Dr. Hale hefur yfirgripsmikla reynslu af stjórnsýslu háskóla, námskrárgerð, kennslu og gæðamati, auk leiðtogastarfa og stjórnunar. Hann hefur tekið þátt í ýmiskonar samstarfi við Háskólasetrið frá árinu 2014, meðal annars með því að koma með nemendahópa og verja rannsóknarleyfi hér á landi árið 2017.

Brack Hale á ResearchGate

R. Morgan Greene:

er fagstjóri meistaranáms í sjávarbyggðafræði hjá Háskólasetri Vestfjarða. Hann er með MSc-gráðu í orkuvísindum frá Háskólanum í Reykjavík og er doktorsnemi við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Rannsóknarefni Morgan Greene snúa meðal annars að viðhorfum almennings, pólitík orkuskipta og þátttöku á orkumörkuðum. Áður en Morgan Greene hóf störf sem fagstjóri starfaði hann sem verkefna- og þróunarstjóri hjá Iceland School of Energy við Háskólann í Reykjavík.

Dr. Matthias Kokorsch:

is a Research Specialist and Project Leader at UW, working on  the projects LostToClimate and ARHAIC.

Regional development, the structural change of communities and socio-economic challenges have always been my major interests. Coming from an old industrial area in Germany where structural change was a living reality, I faced these issues first-hand throughout my childhood and adolescence. I was also always fascinated by the everyday lives of people living in remote places, particularly in the circumpolar regions.
My main current research interests include community resilience, regional development, particularly in sparsely populated regions, structural changes of old-industrial areas, and resource management in combination with aspects of justice and decision-making processes.

Kennsluskrá

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • þekkja og geta útskýrt algengar rannsóknaraðferðir innan sjávartengdra fræða.
  • geta undirbúið, framkvæmt og túlkað kannanir og viðtöl.
  • geta greint viðeigandi aðferðir til að takast á við ólíkar rannsóknarspurningar og aukið gæði rannsókna.
  • geta greint takmarkanir í framkvæmd rannsókna og aðferða.
  • geta greint frá og gagnrýnt ríkjandi rannsóknaraðferðir innan sjávartengdra fræða.