Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
Í námskeiðinu fá nemendur tækifæri til að kynnast helstu hugmyndum um vísindamiðlun, auk sögulegs hlutverks og þróunar hennar.
Vísindamiðlun verður skoðuð í samhengi við samtímamenningu og stefnumótun. Nemendur fá innsýn úr fjölbreyttum fræðigreinum, þar á meðal náttúruvísindum, félagsvísindum, umhverfisfræðum, félagsfræði, sálfræði og menningarfræði, auk lista og hönnunar.
Með því að kafa ofan í svið vísindaskrifa – í formi greina, skýrslna, fyrirlestra, frásagnarbundinnar miðlunar, skapandi nálgana við miðlun rannsókna og vísindasýninga – öðlast nemendur góða reynslu sem nýtist til að víkka út færni sína í vísindamiðlun.
Að námskeiði loknu skal nemandi: