Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
Í þessu námskeiði eru könnuð þau verkfæri, aðferðir og rammar sem nýttir eru við samfélagsþróun. Tilviksrannsóknir eru notaðar til að skoða kosti og bestu framkvæmd við ólíkar aðstæður, þar með talið í strandsamfélögum, afskekktum samfélögum og meðal frumbyggja.
Námskeiðið kannar aðferðir sem notaðar eru til að styðja samfélög í að sækjast eftir sjálfsákvörðunarrétti og staðbundinni stjórn, svo sem auðlindamiðaða samfélagsþróun (eða Asset-Based Community Development), hagsmunagreiningu og valdgreiningu, þátttökunám og aðgerðir (PLA), hæfnismiðaða þróun, staðarsköpun, breytingakenninguna (Theory of Change) og rökfræðilíkön.
Nemendur munu æfa og beita þessum verkfærum við mismunandi aðstæður í námskeiðinu.
Að námskeiði loknu skal nemandi: