Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
Á námskeiðinu er fjallað um svæðisumbreytingar og -þróun út frá félagspólitískum og félagsfræðilegum sjónarhornum. Kennslan byggir á fjölbreyttum, alþjóðlegum dæmum og er bæði hugmynda- og starfsmiðuð.
Nemendur koma svo með innlegg inn í umræðu um svæðisþróun ásamt því að taka þátt í þróunarferlum í samstarfi við hagsmunaaðila.
Að námskeiði loknu skal nemandi: