Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.

Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.

Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.

Sjálfbær svæðishagkerfi

  • Autumn 2026
  • Kennari: Dr. Emil Sandström

Um námskeiðið

Þetta námskeið fjallar um áskoranir og lausnir fyrir sjálfbærni staðbundins efnahagslífs í dreifbýli og afskekktum byggðum víðsvegar um norðurslóðir (heimskautssvæðið) og í hnattvæddum efnahag. Kynntar og rýndar eru aðferðir til að ná fram sjálfbærri staðbundinni efnahagsþróun, fjölbreytni í efnahagslífi og uppbyggingu viðnámsþróttar.

Rætt er um ólík efnahagskerfi og hlutverk stjórnvalda og stofnana, staðbundinna samfélaga, sem og fjölbreytta efnahagslega aðila og sjónarmið. Farið er yfir verkfæri og stefnur sem tengjast þessu efni. Námskeiðið byggir á klassískum hagfræðikenningum sem og nýstárlegum hugmyndum. Það sameinar fræðilega þætti og hagnýt dæmi sem eru viðeigandi til að skilja og efla sjálfbæra staðbundna efnahagsþróun í afskekktum byggðum og dreifbýli á norðurslóðum.

Kennari

Dr. Emil Sandström:

Kennsluskrá

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • geta skilgreint og rýnt í skilyrði fyrir efnahagsþróun í afskekktum byggðum og dreifbýli á norðurslóðum og kannað ferla út frá mismunandi landfræðilegum sjónarhornum.
  • geta greint og rýnt í dæmi um aðferðir, áætlanir og árangursríka stefnumótun fyrir sjálfbæra staðbundna efnahagsþróun og efnahagsþróun svæða og dreifbýlis á norðurslóðum.
  • geta útskýrt dæmi um efnahagsleg verkfæri, stefnur og aðlögun ásamt áhrifum þeirra.
  • hafa góða færni í að lesa og skrifa kafla úr vísindagreinum um efnahagslega þætti dreifbýlis og afskekktra svæða.
  • geta rýnt og rætt um hefðbundin og nýstárleg efnahagsleg hugtök á munnlegan og skriflegan hátt.
  • hafa þróað gagnrýna hugsun varðandi sjálfbæra efnahagsþróun.