Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.

Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.

Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.

Mengun á strandsvæðum Norðurheimskautsins

  • Summer 2027

Um námskeiðið

Námskeiðið kynnir nemendum efnafræði tengda mengun á haf- og strandsvæðum. Útskýrð eru efnasambönd við mörk sjávar, lands, lífvera og lofts, ásamt flutningi mengunarefna. Fjallað er um ástand haf- og strandsvæða í heiminum, sem og um svæðisbundnar, innlendar og alþjóðlegar eftirlitsaðferðir og áætlanir. Hönnun eftirlitsáætlana og mengunarannsókna er kynnt og rædd. Námskeiðið veitir innsýn í eigin lífsstíl og áhrif okkar á umhverfið. Aðaláhersla er á umhverfislegar afleiðingar og áhrif langvarandi lífrænna mengunarefna (POPs) og þungmálma á lífverur, en einnig er fjallað um nýjar tegundir mengunarefna og áhrif þeirra og útbreiðslu á Norðurslóðum. Stutt kynning á umhverfisefnafræði, rannsóknarhönnun og eiturefnafræði (ecotoxicology) er einnig hluti af námskeiðinu.

Kennsluskrá

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • hafa yfirsýn yfir helstu umhverfisógnir á strandsvæðum, bæði náttúrulegar og manngerðar.
  • þekkja helstu mengunarefni og hafa skilning á uppruna þeirra, flutningi og áhrifum á vistkerfið.
  • hafa almennan skilning á helstu aðferðum til að greina umhverfisógnir og aðferðir til að hafa eftirlit með þeim.
  • hafa skilning á hvernig náttúrulegir ferlar og mannlegar athafnir geta haft áhrif á strandumhverfi
  • hafa grunnfærni í að hanna eftirlitsáætlanir og leggja mat á niðurstöður.
  • vera kunnugur þeim margvíslegu málefnum strandsvæða sem eru mikilvæg á mismunandi stöðum í heiminum, ásamt alþjóðlegu starfi og sáttmálum sem tengjast stjórnun á vatnsgæðum strandsjávar.