Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
45 ECTS meistararitgerð er lokaverkefni námsins. Hún er afurð sjálfstæðrar rannsóknar og skal nemandi njóta leiðsagnar leiðbeinanda við vinnslu hennar. Ritgerðina má byggja á gögnum sem nemandi aflar sjálfur eða fyrirliggjandi gögnum. Lokamarkmið ritgerðarinnar er að þjálfa nemendur í að beita fræðilegum vinnubrögðum með sjálfstæðum hætti. Viðfangsefni ritgerða eiga að hafa sterka tengingu við þverfaglegt svið haf- og strandsvæðastjórnunar.
Að námskeiði loknu skal nemandi: