Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
Námskeiðið felur í sér ítarlega greiningu á ferli hafskipulags (Marine Spatial Planning (MSP)), dregur upp mynd af þeim ýmsu niðurstöðum sem eru mögulegar og kannar tiltekin verkfæri og tæknilausnir, ásamt því að tengja kenninguna um hafskipulag við framkvæmd með skoðun á tilviksrannsóknum sem framkvæmdar hafa verið víða um heim. Áskoranir, lærdómur sem dreginn hefur verið og framtíðartækifæri á sviði hafskipulags verða könnuð frá hagnýtu sjónarhorni.
Að námskeiði loknu skal nemandi: