Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
Friðlýst haf- og strandsvæði eru mikilvæg nálgun til að varðveita auðlindir hafsins. Í þessu námskeiði munu nemendur skoða hönnun, stofnun og mat friðlýstra svæða. Þeir munu læra hvernig hægt er að stjórna í gegnum friðlýst hafsvæði vistkerfum sjávar í samhengi við (of)notkun manna og áskoranir sem stafa af mengun og loftslagsbreytingum. Nemendur munu kanna hvernig málefni fjármögnunar, framfylgdar og auðlinda sem liggja þvert yfir landamæri hafa áhrif á stjórnun friðlýstra hafsvæða og getu stjórnenda til að ná markmiðum verndarsvæðisins. Að lokum mun það fjalla um aðrar áhrifaríkar verndaraðgerðir (Other Effective Conservation Measures OECM) og hvernig þær geta stuðlað að verndun sjávarauðlinda.
Að námskeiði loknu skal nemandi: