Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.

Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.

Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.

Inngangur að sjálfbærum sjávarbyggðum

  • Autumn 2026
  • Kennarar: Dr. Gylfi Ólafsson / R. Morgan Greene

Um námskeiðið

Þetta námskeið kynnir kjarnahugtök, áskoranir og tækifæri í samfélögum á norðlægum slóðum og sjálfbæra þróun. Með Ísafjörð sem aðal rannsóknarstað munu nemendur kanna flókin tengsl milli efnahagslegrar og stjórnmálalegrar uppbyggingar samfélagsins, byggingarumhverfisins og umhverfiskerfa þess. Námskeiðið er aðallega kennt af fagfólki og hagsmunaaðilum á Vestfjörðum. Nemendur munu greina hvers vegna þessi svæði eru afar mikilvæg og hvaða helstu áskoranir - allt frá innviðaáskorunum til efnahagsbreytinga - þau verða að takast á við á næstu áratugum.

Kennarar

Dr. Gylfi Ólafsson:

Gylfi er með doktorspróf frá Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Hann er einnig með meistaragráðu í hagfræði frá Háskólanum í Stokkhólmi og B.Ed.-gráðu frá Háskólanum á Akureyri.

Hann hefur meðal annars starfað sem aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra, kennt heilsuhagfræði við Háskóla Íslands, starfað sem rannsakandi og ráðgjafi á sviði heilsuhagfræði og rekið misheppnað sprotafyrirtæki á sviði skordýraræktar.

Gylfi Ólafsson var forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á árunum 2018–2023. Árið 2026 tók hann við embætti bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar.

Ég hef búið á Ísafirði stærstan hluta ævinnar. Mér þykir afar vænt um samfélagið við Háskólasetur Vestfjarða og, í víðara samhengi, það samfélag sem hefur myndast í húsinu þar sem Háskólasetrið er til húsa. Að fá að vera hluti af því samfélagi og ræða um það sem ég hef mestan áhuga á – tölur og rannsóknir – er frábær hluti af því að búa hér.
R. Morgan Greene:

R. Morgan Greene is the Academic Director of the masters' program in Coastal Communities and Regional Development. He holds an MSc in Energy Science from Reykjavík University and is a doctoral candidate in the Department of Business and Economics at Reykjavík University. Morgan Greene's research interests include public perception, the politics of the energy transition and participation in energy markets. Prior to his job as Academic Director, Morgan Greene worked as a program and development manager for the Iceland School of Energy at Reykjavík University

Kennsluskrá

Að námskeiði loknu getur nemandi:

  • skilgreint kjarnahugtök, áskoranir og tækifæri í sjálfbærni í samfélögum á norðlægum strandsvæðum
  • skilið fjölbreytta hagsmuni og áskoranir sem hagsmunaaðilar í strandsamfélögum standa frammi fyrir
  • beitt lærdómi af þróun Ísafjarðar til að meta áskoranir og tækifæri í öðrum strandsamfélögum kynnt helstu áskoranir (t.d. loftslagsbreytingar, fjármögnun innviða o.s.frv.) bæði í skriflegri og munnlegri kynningu