Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.

Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.

Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.

Gagnagreining og túlkun

  • Spring 2027

Um námskeiðið

Tilgangur námskeiðsins er að veita nemendum grunnþekkingu og færni til að greina megindlegar og eigindlegar rannsóknir. Námskeiðið byggir á raunverulegum dæmum úr sjávartengdum fræðum, og nemendur vinna lítið rannsóknarverkefni sem felur í sér gagnagreiningu og túlkun niðurstaðna.

Í megindlega hluta námskeiðsins er farið yfir fjölbreyttar tölfræðilegar aðferðir með áherslu á notkun R-umhverfisins. Aðferðirnar sem kenndar eru, fela meðal annars í sér lýsandi tölfræði, tölfræðipróf, aðhvarfsgreiningu og almenn línuleg líkön.

Í eigindlega hluta námskeiðsins er lögð áhersla á greiningu viðtala og texta, og kynnt er notkun hugbúnaðarforritsins MAXQDA. Fjallað er um grundvallarhugtök rannsókna, svo sem áreiðanleika og réttmæti, auk þess sem mikilvægi sjónrænna gagna (töflur og myndir) er rætt.

Nemendur vinna lítið rannsóknarverkefni þar sem þeir greina gögn og túlka niðurstöður.

Kennsluskrá

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • geta metið eigindleg og megindleg gögn, vera fær um að beita jafnt sem ræða niðurstöður.
  • geta beitt mismunandi tölfræðilegum aðferðum.
  • geta greint viðtöl og texta með tilheyrandi tækjum og aðferðum.
  • geta notast við gögn og dregið upp frambærileg línurit í birtingarhæfu formi.
  • geta túlkað og rætt niðurstöður úr eigindlegri og megindlegri gagnagreiningu.