Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.

Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.

Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.

Fiskveiðistjórnun og fiskveiðitækni

  • Spring 2027

Um námskeiðið

Námskeiðið mun fara yfir ýmis viðfangsefni tengd sjávarútvegi, þar á meðal stofnstærðarmat, tengsl fiskistofna og búsvæða, lífsferla og stofnfræði fiska, mat á aflamarki ásamt veiðistjórnun. Námskeiðið mun veita yfirlit yfir sum af þeim dæmigerðu viðmiðum og viðmiðunarpunktum sem notaðir eru til að meta stöðu stofna, hvaða gerðir gagna eru hluti af líffræðilegu mati og sum af þeim fræðum og verklagi á bak við öflun þeirra gagna. Líkön fyrir vöxt, dánartíðni og stofnstærð verða skoðuð og rædd, ásamt hugtökum sem tengjast pólitískum ferlum veiðistjórnunar. Auk þessa mun námskeiðið fara yfir þá tækni sem notuð er við nýtingu sjávarafurða og hvernig hún getur nýst best, hverjir eru annmarkar hennar, umhverfisáhrif sem hljótast af notkun hennar og framtíðarþróun.

Kennsluskrá

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • geta greint fiskveiðigögn til að áætla vaxtarhraða, dánarstuðul og stofnstærðarmat með notkun staðlaðra aðferða.
  • geta lagt mat á kjörsvæði í tengslum við skynsama stjórnun fiskveiða.
  • geta þekkt lífsskeið og hegðun einstakra tegunda til að stjórna fiskveiðum með áhrifaríkum hætti.
  • geta þekkt samspil kjörsvæða og lífsferla fiska og borið kennsl á þá þætti sem geta haft áhrif á kjörsvæði þeirra.
  • geta þekkt mismunandi sjónarmið fiskveiðistjórnunar og geta borið saman regluverk ýmissa þjóða.
  • skilja hvernig tækniframfarir í sjávarútvegi geta leitt til ofveiði og/eða haft önnur umhverfisáhrif.
  • geta safnað gögnum sem tengjast fiskalíffræði og fiskveiðum og greint þau á vísindalegan hátt.