Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.

Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.

Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.

Ferðaþjónusta og strandsamfélög: Frá auðlindanýtingu til aðdráttarafls

  • Summer 2027

Um námskeiðið

Námskeiðið fjallar um breyttan efnahagslegan grundvöll samfélaga á strandsvæðum vegna aukins ferðamannastraums og áhrif slíkra breytinga á samfélagsuppbyggingu, menningu og samskipti samfélaga á strandsvæðum.

Námskeiðið veitir yfirlit yfir ferðamannaiðnað á strandsvæðum og rætt er um málefni á borð við sameiginlega auðlindanotkun og stjórnun; togstreitu varðandi sjálfsstjórnarsvæði í tengslum við ferðamannaiðnað; ævintýraferðamennsku; áskoranir varðandi flutninga sem tengjast starfsemi á afskekktum hafsvæðum; og þau áhrif sem ferðamannaiðnaður kann að hafa á sjálfbærni samfélaga og umhverfis á viðkomandi svæði.

Kennsluskrá

Að námskeiðinu loknu skal nemandi geta:

  • metið það skipulagslega flækjustig sem nauðsynleg er til að ferðaþjónusta geti átt sér stað í strandsamfélögum.
  • greint breytingar og ágreining í efnahagslífi svæða sem upplifa umskipti frá auðlindanýtingu til þjónustumiðaðrar starfsemi, eins og ferðaþjónustu.
  • greint þá þætti sem laða fólk að afskekktum svæðum sem ferðamenn eða eigendur sumarhúsa og metið á gagnrýninn hátt áhrif þessarar þróunar á samfélagið á staðnum.
  • lagt mat á mikilvægi ferðaþjónustu fyrir lífsviðurværi strandsamfélaga.
  • greint á milli hinna mismunandi efnislegu, félagslegu og pólitísku samhengja sem eru til staðar í ferðaþjónustu á ströndum og á sjó.