Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
Vistkerfi hafs og stranda eru undir auknum þrýstingi af mannavöldum, bæði á staðbundnum og alþjóðlegum mælikvarða. Þetta námskeið kynnir hugtök og aðferðafræði mats á umhverfisáhrifum (EIA) og stefnumótandi umhverfismats (SEA). Nemendur læra hvernig hagnýt verkfæri matsaðferðanna eru notuð og öðlast hæfni til að leggja mat á útkomuna. Fjallað verður um styrkleika og veikleika EIA og SEA.
Að námskeiði loknu skal nemandi: