Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.

Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.

Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.

Haf- og strandsvæðastjórnun: Hagnýt beiting og áskoranir

  • Summer 2027

Um námskeiðið

Námskeiðið, sem er lokanámskeiðið námsleiðarinnar í haf- og strandsvæðastjórnun, leggur áherslu á lausn vandamála og beitingu þeirrar færni og þekkingar sem nemendur hafa aflað er í gegnum námið. Þetta framsýna námskeið er byggt á markmiðum um að byggja upp heilbrigða og réttláta framtíð hafsvæða og að þeim verði vel stjórnað. Það leggur áherslu á þátttöku nemenda og gagnvirkt kennsluumhverfi. Námskeiðið mun hvetja nemendur til að vera íhugandi, festa í sessi og beita því sem þeir hafa lært til þessa og finna lausnir á raunverulegum vandamálum. Kennt verður með blöndu af fyrirlestrum, gestafyrirlestrum frá fagfólki á þessu sviði, kennslustundum og verklegum verkefnum.

Kennsluskrá

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • vera fær um að nýta nýjustu þekkingu og sett hana í samhengi við stjórnun strand- og hafsvæða, þar með talið bestu fáanlegu starfsvenjur og gildandi lög og reglugerðir.
  • geta beitt þekkingu sinni, skilningi og færni í nýjum og ókunnum aðstæðum eða í þverfaglegu samhengi.
  • geta samþætt þekkingu, leyst flókin úrlausnarefni og sett fram skoðun á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga.
  • geta miðlað flóknum vísindalegum upplýsingum, áskorunum og niðurstöðum á sviði haf- og strandsvæðastjórnunar til fræðimanna og almennings.
  • geta kynnt og lýst vísindalegum álitamálum og rannsóknarniðurstöðum með greiningar- og aðferðafræðilegum hugtökum.