Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
Kynntir eru þættir sem hafa áhrif á seiglu samfélaga, þ.e. getu þeirra til að jafna sig eftir mikla áraun. Beitt er þverfræðilegum nálgunum til að skýra áhrif hamfara á einstaklinga, nærsamfélag, innviði og stofnanir. Kynnt eru meginhugtök hamfarafræða út frá jarðvísindum, umhverfisfræðum, félagsfræðum, heilbrigðis- og sálafræðum og menningarfræðum. Fjallað er um vöktun og viðvaranir, undirbúning og hópæfingar sem dregið geta úr áhrifum hamfaranna. Einnig er farið yfir áfallahjálp, samskipti, fjölmiðla, listræna og andlega þætti sem hluta af viðbrögðum við erfiðleikum, sorg og áföllum.
er nýdoktor við Stofnun um sjálfbærnifræði við Háskóla Íslands og rannsakar þann samlegðarávinning sem getur skapast í samtali vísinda og lista. Hún nálgast sjálfbæra þróun út frá sjónarhorni hamfaraáhættuminnkunar og skoðar hlutverk lista og hönnunar í viðbúnaði, neyðaraðstoð og endurreisn í kjölfar hamfara.
Uta tekur nú þátt í verkefninu Out of Sync, þar sem nýjar leiðir til að halda viðburði og sýningar eru rannsakaðar, bæði á tímum heimsfaraldurs og eftir hann. Hún var einnig nýlega meðstofnandi Disaster Studios, vettvangs sem tengir saman hönnun og stjórnun hamfaraáhættu og leggur áherslu á gagnreyndar hönnunarlausnir og skapandi leiðir til að draga úr hamfaraáhættu.
Að námskeiðinu loknu skal nemandi: