Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
Á námskeiðinu verður sjónum beint að samspilinu milli sjávareldis og umhverfis með því að rýna í lögmál og hugtök sem tengjast vistfræði sjávareldis. Ólík kerfi sjávareldis og framleiðsluaðferða verða skoðuð. Meginþema námskeiðsins verða umhverfisþættir fiskeldis, þar á meðal fóðrunarvandi, óhefðbundin fóðrun og vistvæna IMTA-nálgun (Integrated Multitrophic Aquaculture). Á námskeiðinu verður einnig fjallað um samfélagsleg áhrif fiskeldis.
Að námskeiði loknu skal nemandi: