Háskólasetur Vestfjarða leitar að frumlegum, metnaðarfullum vefstjóra í 40% starf.
Vefstjóri hefur umsjón með öllu sem viðkemur vefmálum Háskólaseturs, þar með talið umsjón með þróun og uppbyggingu vefsíðu og fréttaöflunar og fréttaskrifa á vefsíðu, samskipti við fjölmiðla og önnur tilfallandi störf sem snúa að kynningarmálum og innra starfi Háskólasetursins.
Okkur vantar góðan penna sem kann að skrifa jafnt fyrir Vestfirðinga og alþjóðlegt háskóla- og rannsóknarumhverfi. Við leitum að lausnamiðuðum og skapandi einstaklingi sem á auðvelt með að vinna sjálfstætt og brennur fyrir að kynna alþjóðlegt háskólalíf á Ísafirði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Ráðið er í starfið vegna fæðingarorlofs. Ráðningin er tímabundin til 31. ágúst 2027. Æskilegt er að nýr starfsmaður geti hafið störf sem fyrst á haustmánuðum 2025. Upplýsingar veitir Peter Weiss, forstöðumaður, í síma 450 3045 eða weiss@uw.is.
Umsókn (kynningarbréf og ferilskrá), sendist í tölvupósti á forstöðumann HV, Peter Weiss: weiss@uw.is.
Umsóknarfrestur er til 6. júní 2025.