Námskeiðið Stjórnun verndaðra hafsvæða hefst
- Háskólasetur Vestfjarða
- 27. mars 2023
- 08:00
- Opin námskeið
Námskeiðið Marine Protected Areas Management, eða Stjórnun verndaðra hafsvæða, er kennt í Háskólasetri Vestfjarða dagana 27. mars til 5. apríl. Kennari námskeiðsins er Dr. Bradley W. Barr, yfirráðgjafi við haf- og loftslagsstofnun National Marine Sanctuaries’ Maritime Heritage verkefnisins, og gestaprófessor við University of New Hampshire School of Marine Science and Ocean Engineering.
Námskeiðið er eitt af valnámskeiðum meistaranámsleiða Háskólaseturs í bæði Haf- og strandsvæðastjórnun og Sjávarbyggðafræði.
Öll námskeið á meistarastigi við Háskólasetur Vestfjarða eru opin þátttakendum jafnt frá háskólum sem atvinnulífi. Kennslan fer fram á ensku enda er námsmannahópurinn alþjóðlegur.
Allar nánari upplýsingar um umsóknir, inntökuskilyrði og skráningargjald eru aðgengilegar á vefsíðu Opinna námskeiða við Háskólasetrið.
Nánari upplýsingar um efni námskeiðsins má nálgast í námskeiðslýsingu.
Valnámskeið | 4 ECTS | Námskeið: CMM22
Kennari: Dr. Bradley W. Barr
Dagsetningar: 27. mars - 5. apríl