Námskeiðið Mengun á hafsvæðum Norðurskauta hefst

Námskeiðið Pollution in the Coastal Arctic, eða Mengun á hafsvæðum Norðurskauta, er kennt í Háskólasetri Vestfjarða dagana 17. apríl til 28. apríl. Kennari námskeiðsins er Dr. Kristine Bondo Pedersen, rannsakandi við Akvaplan-niva í Noregi.

Námskeiðið er eitt af valnámskeiðum meistaranámsleiða Háskólaseturs í bæði Haf- og strandsvæðastjórnun og Sjávarbyggðafræði.

Öll námskeið á meistarastigi við Háskólasetur Vestfjarða eru opin þátttakendum jafnt frá háskólum sem atvinnulífi. Kennslan fer fram á ensku enda er námsmannahópurinn alþjóðlegur.

Allar nánari upplýsingar um umsóknir, inntökuskilyrði og skráningargjald eru aðgengilegar á vefsíðu Opinna námskeiða við Háskólasetrið.

Nánari upplýsingar um efni námskeiðsins má nálgast í námskeiðslýsingu.

 

Valnámskeið | 4 ECTS | Námskeið: CMM14

Kennari:  Dr. Kristine Bondo Pedersen

Dagsetningar: 17. apríl - 28. apríl

Á döfinni

Dr. Kristine Bondo Pedersen
Dr. Kristine Bondo Pedersen