Sýning: Skipstjórnarnám á Vestfjörðum í 170 ár
- Byggðasafn Vestfjarða, Ísafirði
- 05. október 2022
- 18:00 til 20:00
- Auglýsing
Þann 5. október næstkomandi verður opnuð sýning í Byggðasafni Vestfjarða. Tilefnið er hin langa og merka saga skipstjórnarnáms á Vestfjörðum en í ár eru liðin 170 ár síðan skipstjórnarkennsla var fyrst kennd á Ísafirði. Á Ísafirði bjóða þrjár fræðslustofnanir upp á nám tengt hafinu, sjómennsku og skipstjórn en það eru Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Menntaskólinn á Ísafirði og Háskólasetur Vestfjarða. Sýningin opnar klukkan 18:00.