Ráðstefna um íslenska þjóðfélagið
- Edinborgarhúsið og Háskólasetur Vestfjarða
- 13. maí 2022 til 14. maí
- 08:30 til 17:00
- Ráðstefna
Föstudaginn 13. apríl, hefst fjórtánda ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið í Edinborgarhúsinu. Eftir hádegi færist ráðstefnan yfir í Háskólasetur Vestfjarða og stendur fram á laugardag.
Að þessu sinni fer ráðstefnan fram undir yfirskriftinni „Samfélag og náttúra – stál í stál eða hönd í hönd?“. Fjöldi áhugaverðra málstofa fara fram á ráðstefnunni og eru þær opnar almenningi. Við hvetjum fólk því til að kynna sér efni málstofanna og koma við í Edinborgarhúsinu og Háskólasetrinu á föstudag og á laugardag. Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til að sækja stakar málstofur en ef fólk vill taka þátt í sameiginlegum hádegisverði þarf að skrá sig og greiða þátttökugjald, 3000 kr. fyrir einn dag og 6000 kr. fyrir báða dagana.
Allar nánari upplýsingar um skráningu og fleira eru aðgengilegar á vefsíðu ráðstefnunnar, eða í tölvupósti - sissu@uw.is