Hnallþórukaffi
- Háskólasetur Vestfjarða
- 16. nóvember 2022
- 16:00 til 18:00
- Félagslíf
Síðasti haustviðburður átaksins Íslenskuvænt samfélag - Við erum öll almannakennarar fer fram á Degi íslenskrar tungu með kaffihúsastemningu á Háskólasetrinu þar sem við leikum okkur að íslenskum orðum í textasmiðju, fræðumst um nýyrði Jónasar Hallgrímssonar og fáum okkur væna sneið af hnallþóru til að fagna fæðingu Jónasar.
Átakið Íslenskuvænt samfélag hlaut viðurkenningu Íslenskrar málnefndar í september og hefur reynst svo skemmtilegt og gagnlegt að fleiri viðburðir verða efalaust skipulagðir á nýju ári.