Áhrif æðarbúskapar á kríuvarp á Íslandi

Miðvikudaginn 6. maí mun Eliza-Jane Morin verja meistaraprófsritgerð sína í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða. Meistaraprófsvörnin er opin almenningin en vegna samkomubanns af völdum COVID-19 verður vörnin aðgengileg á netinu á YouTube rás Háskólaseturs.

Í ritgerðinni fæst Eliza-Jane við að greina hvaða áhrif, viðhorf og aðferðir æðarbænda á Íslandi hafa á kríuvarp og ber hún titilinn „Farming for Conservation: How Eiderdown Farmers’ Practices and Perspectives Impact Breeding Arctic Terns in Iceland.“ Nánari upplýsingar má nálgast í úrdrætti á ensku.

Leiðbeinendur eru dr. Freydís Vigfúsdóttir, sérfræðingur við Háskóla Íslands og dr. Catherine Chambers, fagstjóri meistaranámsins í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða. Prófdómari er dr. Lilja Jóhannesdóttir, vistfræðingur hjá Náttúrustofu Suðausturlands.

Eliza-Jane Morin ver meistaraprófsritgerð sína um áhrif æðarbúskapar á kríuvarp á Íslandi.

Á döfinni