Vorþing Þjóðfræðastofu
Fjallað verður m.a. um þjóðerni og íróníu. Sýnd verða sýnishorn úr
heimildamyndum í framleiðslu Þjóðfræðistofu, svo sem Leitin að Gísla
Suurinpojan, sem fjallar um ferð finnsks þjóðfræðings á slóðir Gísla sögu
Súrssonar.
Hannes Lárusson myndlistarmaður og forstöðumaður Íslenska bæjarins og
Magnús Rafnsson sagnfræðingur og stjórnarformaður Strandagaldurs stíga á
stokk og ræða íslenskan torfbæjararf.
Þá mun Dr. Sigurjón Baldur Hafsteinsson mannfræðingur og lektor í
safnafræðum við HÍ kynna þá nýju námsbraut.
Að lokum verður fjallað um hinn goðsagnakennda mjöð og gestum boðið að
bragða á.
Vorþingið mun fara fram á Café Riis á Hólmavík og hefst klukkan 13.30.
Allir áhugamenn velkomnir og sérstaklega þeir sem hafa upplýsingar um
torfbæi á Ströndum.
Frekari upplýsingar í dir@icef.is og www.icef.is