Ráðstefna um íslenska þjóðfélagið 2015
"Hvað búa eiginlega margar þjóðir í þessu litla landi?" er yfirskrift 9. ráðstefnunnar um íslenska þjóðfélagið sem verður haldin á Ísafirði dagana 17.-18. apríl 2015. Yfirskrift ráðstefnunnar vísar til þeirra fjölmörgu og ólíku þjóðfélagshópa sem búa Ísland. Möguleg umfjöllunarefni eru óþrjótandi; trúarbrögð, þjóðerni, efnahagur, búseta, stjórnmálaskoðanir, kyn, kynþættir og kynslóðabil, svo fátt eitt sé nefnt. Á ráðstefnunni gefst fræðafólki úr öllum greinum hug- og félagsvísinda kjörið tækifæri til að koma fjölbreytilegum rannsóknum á framfæri og deila með fræðasamfélaginu. Ítarlegri upplýsingar verða sendar út í upphafi nýs árs en hér með er kallað eftir erindum og skulu ágrip berast Birnu Lárusdóttur, verkefnastjóra hjá Háskólasetri Vestfjarða birna@uwestfjords.is, eigi síðar en mánudaginn 16. febrúar 2015.