Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir styrkumsóknum
Stofn- og rekstarstyrkir
Nú auglýsir Menningarráð Vestfjarða í fyrsta skipti eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur vandlega á vefnum www.vestfirskmenning.is, en til ráðstöfunar í stofn- og rekstrarstyrki eru samtals 11,4 milljónir að þessu sinni. Umsækjendur þurfa að skila ítarlegum upplýsingum um starfsemi sína, þar á meðal síðasta ársreikningi. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun stofn- og rekstrarstyrkja 2012 verði horft sérstaklega til umsækjenda sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
- Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna- og menningararfs.
- Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi.
- Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu.
Umsóknarfrestur um stofn- og rekstrarstyrki er til og með 30. mars 2012.
Verkefnastyrkir
Jafnframt er auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki, en vakin er athygli á að á árinu 2012 verður aðeins auglýst eftir verkefnastyrkjum í þetta eina skipti. Hægt er að sækja um stuðning við hverskyns menningarverkefni, en til hliðsjónar eru úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Fylgiskjöl með umsóknum um verkefnastyrki eru afþökkuð, allt sem skiptir máli á að koma fram í umsókninni sjálfri. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun verkefnastyrkja 2012 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
- Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.
- Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.
- Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.
- Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.
Umsóknarfrestur um verkefnastyrki er til og með 10. apríl 2012.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is. Umsóknareyðublöð, úthlutunarreglur og upplýsingar eru á www.vestfirskmenning.is.
Eins og kynnt hefur verið mun Menningarráð Vestfjarða nú í fyrsta skipti úthluta stofn- og rekstrarstyrkjum á þessu ári og er umsóknarfrestur um þá til 30. mars. Einnig hafa verið auglýst eftir umsóknum um hefðbundna verkefnastyrki og er frestur til að sækja um þá til 10. apríl. Aðeins verður auglýst einu sinni eftir verkefnastyrkjum á árinu 2012. Af þessu tilefni mun Menningarráð Vestfjarða standa fyrir kynningu á styrkjum ráðsins og stuttu námskeið um umsóknagerð víða um Vestfirði á næstu dögum og eru fyrstu námskeiðin þegar að baki og heppnuðust vel. Búið er að fastsetja eftirtalin námskeið:
Malarkaffi, Drangsnesi - 11. mars kl. 17:00
Reykhólaskóla, Reykhólum - 12. mars kl. 17:00
Sjóræningjahúsinu, Patreksfirði - 14. mars kl. 17:00
Grunnskólanum Tálknafirði - 14. mars kl. 20:00
Skrímslasetrinu Bíldudal - 15. mars kl. 17:00
Rósubúð, Höfðagötu 9, Hólmavík - 16. mars kl. 17:00
Skrifstofuhótelinu, Ísafirði - 19. mars kl. 17:00
Simbahöllinni, Þingeyri - 19. mars kl. 20:00
Purku handverkshúsi, Flateyri - 20. mars kl. 17:00
Veitingastaðnum Talismann, Suðureyri - 20. mars kl. 20:00
Náttúrugripasafni Bolungarvíkur - 21. mars kl. 17:00
Melrakkasetri Íslands, Súðavík - 21. mars kl. 20:00
Allir eru velkomnir á námskeiðin, ekki þarf að skrá sig sérstaklega og þátttaka er þeim sem mæta að kostnaðarlausu.