Málþing um Matthías Jochumsson
Á árinu 2010 eru 175 ár liðin frá fæðingu Matthíasar Jochumsonar, en hann fæddist þann 11. nóvember árið 1835 að Skógum í Þorskafirði.
Málþing að Nýp á Skarðsströnd
175 ár frá fæðingu Matthíasar Jochumsonar
að Skógum í Þorskafirði
Laugardaginn 31. júlí kl. 15:00-17:00
Af þessu tilefni verður málþing að Nýp á Skarðsströnd, Dalasýslu og hefur Kristjáni Árnasyni þýðanda/bókmenntafræðingi og Þórunni Erlu-Valdimarsdóttur rithöfundi verið boðið að fjalla um skáldið og verk hans.
Kristján mun flytja erindi um þýðingar og skáldskap Matthíasar og Þórunn mun fjalla um æviferil skáldsins og bernsku að Skógum.
Umræður að loknum erindum.
Málþing að Nýp á Skarðsströnd
175 ár frá fæðingu Matthíasar Jochumsonar
að Skógum í Þorskafirði
Laugardaginn 31. júlí kl. 15:00-17:00