miðvikudagur 16. desember 2009

Jólaspjall Þjóðfræðistofu

19. desember 2009, kl. 13

 

Laugardaginn 19. desember mun Þjóðfræðistofa blása til þjóðfræðiþings, útgáfuhófs og menningardagskrár. Auk þess að miðla af rannsóknum verður leikin tónlist, sýndar kvikmyndir og haldið upp á nýjar útgáfur. Þá munu höfundar lesa upp úr nýútgefnum bókum.

Jólaspjallið verður haldið í Bragganum á Hólmavík en Café Riis býður upp á létt jólahlaðborð á vægu verði.


Á dagskránni:

Kristinn Schram forstöðumaður Þjóðfræðistofu, segir frá starfseminni á árinu
Óli Gneisti Sóleyjarson þjóðfræðingur, segir frá nýútkominni bók sinni Eve Online sem gefin er út af Þjóðfræðistofu
Jón Þór Pétursson þjóðfræðingur, segir frá mastersverkefni sínu og rannsóknarverkefni Þjóðfræðistofu um íslenska matarhefð
Katla Kjartansdóttir verkefnastjóri á Þjóðfræðistofu, segir frá
samtímasöfnun á leikjum íslenskra barna
Sigurður Atlason framkvæmdastjóri Strandagaldurs, kynnir samstarfsverkefni um jólaendurminningar Strandamanna
Heimildamyndin Leitin að Gísla Suurinpojka
Jón Jónsson menningarfulltrúi og þjóðfræðingur, flytur jólahugvekju
Söngflokkurinn Fúmm fúmm fúmm flytur jólalög
Höfundar lesa upp úr jólabókum:
Vilborg Davíðsdóttir - Auður
Eiríkur Örn Nordahl - Gæska

 

Frekari upplýsingar á vefsíðu Þjóðfræðistofu www.icef.is, í netfanginu
dir@icef.is og hjá forstöðumanni í síma 8661940.