Húsnæði óskast fyrir nema og gestakennara
Háskólasetur sér um milligöngu, þ.e. kynningu á húsnæðinu ásamt tengingu milli eiganda og væntanlegs leigjanda. Leigusamningur er gerður milli leigjenda og húseigenda.
Leitað er að íbúðum með húsgögnum, baði, þvotta- og eldunaraðstöðu eða herbergjum með húsgögnum með aðgang að baði, þvotta- og eldunaraðstöðu.
Háskólasetur óskar einnig eftir að taka á leigu húsnæði fyrir gestakennara í haf- og strandsvæðastjórnun veturinn 2011-2012. Húsnæðið þarf að vera fullbúið með húsgögnum, baði/sturtu, þvotta- og eldunaraðstöðu og aðgangi að interneti.
Kostur ef húsnæðið er í göngufæri við Háskólasetrið, hvort sem um ræðir húsnæði fyrir nema eða kennara.
Nánari upplýsingar veitir Pernilla Rein, verkefnastjóri í síma 450 3044 eða pernilla@uwestfjords.is.